Borg Brugghús

Sturlaugur Jón Björnsson

Hóf snemma nám í tónlist og gerði fátt annað en að spila á hornið sitt þangað til að hann uppgötvaði bjórinn. Þrátt fyrir að hafa lokið meistaragráðu í hornleik, spilað og ferðast um víðan völl með mörgum mismunandi hljómsveitum, átti bjór hug hans allan.

Sturlaugur hóf að brugga bjór af áhuga upp úr aldamótum og eitt leiddi af öðru þar til að hann lauk bruggmeistarnámi frá skóla American Brewers Guild. Þar hlaut hann þjálfun í Hoppy Brewing Company í Sacramento CA og starfaði síðan í Russian River Brewing Company í Santa Rosa CA sem lærlingur Vinnie Cilurzo.  Sturlaugur er nú bruggmeistari Borgar brugghúss, míkróbrurgghús Ölgerðarinnar.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband